THE OFURKRUKKAR
24.09.2006 14:39:18 / Susie

Megavikan

Ég veit þessi færsla kemur seint.. en betra er þó seint en aldrei þessi yndislega vika okkar Söndru verður nú opinberuð í formi punktafærslu:)

The Tolgas....

LLLLangmælgi........

Alladin, Ali, Tolga,Özkan, Hikmet.......

Azkim: Elskan....Seni sevyorum: Ég elska þig

Sandra lætur tékka sig inná annað hótel klukkan 4:30 að staðartíma...

"Can I take you to the candyshop?".. sagt við Susie við undirleik lagsins Candyshop með 50 cent...

What is your name???..My name is ALLADIN....

The naked appartment...

Hóteleigandinn tók á móti Söndru með því að syngja fyrir hana "Welcome to the Forum hotel"... spilandi undir á Saz....

Dagur 2... 20 milljóna króna Chrysler kemur að sækja eðalkvendin... farið inn bakdyramegin á funheitan stað... bannað að horfa á okkur Söndru og mönnum næstum hent út fyrir að spjalla við Söndru....

Fengum okkur súpu í góðra vina hópi kl 08:00 fórum ekki inná hótel fyrr en klukkan  09:00 þann morguninn...

Ástarbréf????

Slæm enskukunnátta... "Kiss you".... "Miss you fast"...??

Tungumál ástarinnar............

Topless sunbathing.....

Krumlurnar á Söndru

"Oh my god... why are you so beautiful"???

Turkish girl??? Sandra albani??

Krumlurnar á Söndru....

Lísháski í barnalauginni...

Sagði einhver kappsund??

"Dans" stiginn í froðunni... Bannað innan 18....

"Klám er loðið og teygjanlegt hugtak".....

Við Sandra áttum yndislegt frí.. þótt í skugga hryðjuverka væri ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 14:09:31 / Sandra

MEGAVIKA

Jæja gott fólk...fannst ég knúin til þess að koma með eina góða comeback færslu hérna á bloggið í ljósi nýyfirstaðinna og komandi atburða í lífi mínu...:D Þannig er mál með vexti að hún Susie mín er, í þessum skrifuðu orðum, stödd á sólarströndinni Marmaris í Tyrklandi og hefur henni tekist á einhvern óútskýranlega hátt (hmmm) að sannfæra mig um að koma og hitta sig á fyrrnefndum stað eftir tæpa viku...! Ég gekk frá öllu núna áðan og er hvorki meira né minna að fara til minnar heittelskuðu á þriðjudaginn næsta! var að skella á stelpuna og hún er meira en lítið spennt fyrir þessu. við höfum kosið að kalla þessa viku MEGAviku Susie og Söndru...og ég get alveg lofað ykkur því að það verða sko allar pizzur á matseðli á 1000 kall!! (STÆRÐIN SKIPTIR EKKI MÁLI!!!) HEHEHE (vááá lélegt grín..eeen!! :) Annars er voða lítið að frétta af mér...byrjaði á frumgreinasviði HR á mánudaginn, þetta lofar bara góðu þó svo ég væri nú helst til í að vera einhversstaðar annarsstaðar...eeeen svona er lífið...maður verður bara að líta á björtu hliðarnar og reyna að gera gott úr því sem maður hefur...minnir mig soldið á orð sem amma mín er vön að segja (vá hljómar doldið skrítið...) langaði til að skrifa þau hérna að gamni Guð gefi mér æðruleysi, til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt, og vit til að greina þar á milli. jájá ég skal svo hætta að koma með eitthvað svona...finnst þetta bara vera lýsandi fyrir það hvernig ég ætla að takast á við þá hluti sem framundan eru og langað að deila því með ykkur..(ekki spyrja mig afhverju:) en allavega....gæti vel verið að þið væruð svo heppin að fá eins og eina...kannski tvær færslur frá okkur stöllum alla leið frá Tyrklandi...en ég lofa samt engu..veit ekkert hvernig internet mál eru þarna! en við vonum það besta! Annars vona ég bara að allir þeir sem mér þykir vænt um hafi það gott og séu brosandi! :D kiss Sandra

» 6 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 13:55:40 / Susie

Speki dagsins


"Hver einstaklingur á samkvæmt náttúrunni rétt á að vera í friði með líf sitt og limi. Án þess að maðurinn sé eign sín getur hann ekki ekki verið hann sjálfur. Enginn getur ásælst þessa eign nema stríða um leið gegn náttúrunni og jafnrétti og réttlæti milli manna.
Þú og ég værum ekki til án þessa. Enginn maður ræður yfir rétti mínum og frelsi og ég ekki yfir rétti og frelsi nokkurs manns.."

Richard Overton


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 15:14:40 / Susie

Hugleiðing dagsins

Skattar eru frelsisskerðing. Því til rökstuðnings má benda á að þræll, sem þarf að vinna fyrir aðra, er ekki frjáls. Maður sem greiðir helming tekna sinna í skatta er hálfur þræll. Ekki skiptir máli hvort valdhafar telji sig nota peningana til góðra verka.

 

 

Stal þessu úr stefnuskrá frjálshyggjufélagsins.... hef engu við þetta að bæta.


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 18:01:12 / Susie

(Ó)Áhugaverðar staðreyndir

  1. Ég hef ekki farið á deit (eða í sleik) í hálft
  2. Prófin mín kláruðust ekki fyrr en í júlí og því var það mest spennandi í lífi mínu til 10 júlí útreikningar á sýru og basa hvörfum.
  3. Ég hef farið 4 sinnum á djammið síðan fyrir jól...Í þremur af fjórum skiftum fór ég vegna þess að ég var með sænska frændur mína í heimsókn og svona neyddist til þess að sýna þeim djammið...
  4. Núna þegar ég er loksins búin að klára skólann fór ég beint að vinna og hef tekið að mér ógrynni af aukavöktum til þess að hafa eitthvað að gera.
  5. Sandra Kristjáns er í stöðugum sleik ;)
  6. Ég held að ég hafi misst af fengitímanum vegna prófa lesturs þar af leiðir það verður mjög langt þangað til að ég fer í sleik
  7. Ég átti bíómynda móment fyrir framan barinn á útskriftarkvöldið þar sem ég sá fallegasta mann í heimi..... ég var með frænku mini og þorði ekki að fara í sleik..
  8. :^)

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 09:29:25 / Susie

Hamborgarahryggur

Alltaf er því þanniog farið þegar maður fer ekki eftir ráðleggingum annara að maður skítur á sig... Ég má ekki fara í ljós einsog er. En ég þurfti náttúrulega að vita betur og skellti mér í ljós í gærkvöldi þar sem að heimilisfólkið mitt er farið að kalla mig Casper eða Mjallhvíti... Útlitsþráhyggjan kemur manni oft á slæma staði... Ég svaf lítið í nótt.. fannst vera svo heitt í herberginu mínu og var alltaf að vakna til þess að tékka á ofninum sem var mér til mikillar furðu stilltur á núll.... Þegar ég reis úr rekkju í morgun var mér illt í hverri einustu húðfrumu á líkamanum... Ég hafði skaðbrunnið í ljósum og er núna á litinn einsog hamborgara hryggur... Sweet....

Af þessum óförum mínum ætla ég að draga þann lærdóm að besservisser háttur kemur manni í ógöngur og maður ætti alltaf að hlýða ráðleggingum þeirra sem betur vita.


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 20:38:32 / Steina

Jæja ætli sé ekki kominn tími til að maður skrifi nokkrar línur hérna.......En ég er ekki búin að geta gert neitt annað upp á síðkastið nema læra, læra og aftur læra og satt að segja er maður kominn með upp í kok af að læra en það er bara eitt próf eftir hjá mér sem er á mánudaginn og guð hvað mig hlakkar til þegar það er búið!!:o Var að taka ísl 303 í dag og það er ekki alveg það skemmtilegasta sem farið er í henni en það eru hávamál og völuspá!8| Fegin að vera búin með það bull hehe:haha:.......en ég hef ekki merkilegra að segja ykkur annað en þetta svo ég kveð í bili........... ;)bleeee;)..........


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 14:52:00 / Steina

Sólarhringur í brottför!

Þá er bara sólarhringur í að ég fari til Kúbu!!:o Spenningurinn er í hámarki hjá mér núna og stressið farið að segja til sín, er að byrja að pakka niður núna hefði reyndar átt að byrja á því fyrr:S......en svona er þetta svo oft hjá manni allt á seinasta snúningi hehe.....ákvað að henda inn nokkrum línum hér áður en að ég færi, bara að kveðja og svona:haha:......hafið það gott hér heima, ég veit að ég á allavega eftir að hafa það gott í steikjandi hita í sólbaði8)

see ya later


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 17:39:30 / Steina

Var að kaupa mér geðveikann benz vildi bara deila ánægjunni minni með ykkur 8) Var að reyna að setja mynd af honum hér inn kann það ekki alveg.......:S :lol:


» 15 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 15:54:16 / Steina

Hellú!

Jæja þá held ég sé komið að því að maður fari að henda inn nokkrum línum hérna.....Það er búið að vera svo brjálað að gera hjá mér í skólanum að ég hef bara ekki haft tíma til að blogga neitt, svo er ekki langt í að önnin verði búin svo að ég verð að vera dugleg í lærdómnum....svo er ég líka að fara til Kúbu núna 11. apríl VÚHÚ!!:haha::haha: hlakka ekkert smá til að fara þangað, liggja í sólbaði og versla!!8) guð get ekki beðið eftir að fara!:P Svo er hún Friða vinkona að fara til Bandaríkjanna í dag, góða ferð Fríða mín!!;) en við stelpurnar vorum heima hjá henni í gær að kveðja hana, enda verður hún í burtu í mánuð.........:cry:............en ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í bili....see ya....:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 12:41:24 / Susie

Tíu hlutir sem ég þoli ekki

Tíu hlutir sem ég þoli ekki:

1.EinkaANNIR.... Hverjum datt eiginlega þetta orðskrípi í hug??? Eiga ekki allir að muna eftir unn-reglunni síðan í fyrsta bekk; einkunn miskunn forkunn og vorkunn?? Um leið og fólk fer að ræða einkANNIRNAR sínar fæ ég aulahroll niður allt bak.

2. Fólk sem spáir í því... það er nefninlega bannað... Annaðhvort spáir maður í ÞAÐ eða pælir í því... Megas sagði "spáðu í mig þá mun ég spá í þig", ekki spáðu í mér....

3. KEYptu þetta.....Mér vitanlega er sögnin að keypa ekki til... Svo í guðanna bænum kauptu.

4. Mér hlakkar... sker í eyrun einsog rakvélarblað... ég hlakka... en þér hlakkar ekki neitt.

5.Fólk sem byggir sér 4 metra há súlu, klifrar síðan upp á hana og stendur þar, langt hafði yfir sauðsvartan almúgan.. Sannfært um eigið ágæti... Hátt hreykir heimskur sér

 6. Idolið... er þetta ekki orðið pínu þreytt, hver annar sturtusöngvarinn á fætur öðrum.. Endalaust flæmi yfir allar stöðvar af auka efni og aukaaukaefni.. Allt í lagi þegar margra milljóna þjóð eins og Bandaríkinn telja sig geta haldið svona keppnir ár eftir ár.. En hey.. við erum bara tæp 300. þús. Er ekki kominn tími á taka langa pásu? Breimið í kettinum við hliðina á mér hljómar betur en vælið í sumum keppendunum..

7. Nýji þátturinn með Guðrúnu og Felix milli sex og sjö....Hvað er að gerast í gæðastjórnun hjá þessum sjónvarpsfyrirtækjum? almáttugur.. þetta er svona leiðinlegri útgáfa af Dr.Phil hittir Sirrý...(og ég sem hélt að það væri ekki mögulegt).. Þarna fá þau tvö tækifæri á að mala í heila klukkutíma um allt og aðallega ekkert... Úff

8. Og núna afla ég mér óvinsælda... Grænmetisætur... við erum efst í fæðukeðjunni... og fyrir hvert dýr sem þið étið ekki eru áræðanlega einhverjir kanar á móti að éta þrjú... Svekkjandi...

 9. Fyrihugað reykingarfrumvarp... Súr andi forræðishyggjunnar svífur yfir landi voru og allir eru voðalega glaðir... Falsaðar rannsóknir og svo framvegis.. verndum eignarréttinn.

10. Geir Ólafsson...


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 12:15:50 / Susie

Af engu....

Febrúar var virkilega fyndin mánuður. Ég fór til útlanda,varð einu ári nær því að deyja og ég náði að toppa mitt eigið met í dramantík. Ég var ástfangin og átti sálufélaga í einn dag... Spes, en þetta var allt saman mjög upplífgandi og skemmtilegt. Eiginlega alveg eins og í amerískri bíómynd, ég var allaveganna mjög glöð að hafa fundið einhvern sem er jafn klikkaður og ég á þessu sviði.......


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 10:45:25 / Sandra

sniðugt...

Ég fékk að stela þessu af annarri síðu...finnst þetta doldið sniðugt.. :) gerið þið svo í comment það sama bara sem á við ykkur :D

Ég hef...

(x) reykt sígarettu
( ) klesst á bíl vinar/vinkonu
(x) stolið bíl (foreldranna)
(X) verið ástfangin/n
(X) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n
( ) lent í slagsmálum
(x) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
(X) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi (ekki alvarlega sko)
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(X) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
( ) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
( ) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
(x) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
( ) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n
( ) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
( ) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
(x) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið deja vu-
( ) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
( ) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum
( ) leikið þér berfætt/ur í drullunni
( ) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
( ) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
( ) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
( ) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (við erum að tala um krónur, fimmkalla og tíkalla hérna)
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
( ) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
(x) verið kysst/ur undir mistilteini
(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
(x) kveikt bál á ströndinni
( ) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
(x) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig

ókei nú þið..... :haha:

kiss kiss


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 00:20:55 / Steina

Klukki Klukk

Hún Sirrý mín klukkaði mig svo ég verð víst að svara hér nokkrum spurningum;)

 

Fjögur störf sem ég hef unnið við um æfina:

  1. Allianz 
  2. Ogvodafone
  3. á sjó (hehe ég er ekki að djóka)
  4. Café Konditori

Fjórar bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur:

  1. The Godfather
  2. Fight Club
  3. Freddy got fingered
  4. Sin City

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

  1. Sólvallagötu
  2. Klapparstíg
  3. Víðimel
  4. Kópavogi

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

  1. O.C
  2. CSI
  3. Friends
  4. Sex and the city

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

  1. Mbl.is
  2. Fa.is
  3. Og fullt af öðrum bloggsíðum…

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

  1. Marakkó
  2. Danmörk
  3. Kanaríeyjar
  4. Glasgow

Fernt matarkyns sem ég held uppá:

  1. Pizza
  2. Kjúklingur
  3. Kínamatur
  4. Lasagne

Fjórir staðir sem ég vildi frekar vera á núna:

  1. Á Kúbu í sólbaði (get ekki beðið eftir að fara þangað)
  2. Upp í bústað
  3. Í Glasgow að versla
  4. Uppi í rúmi að sofa….

Fjórir bloggara sem ég klukka:

  1. Susie
  2. Sandra
  3. Ásta
  4. Sunneva

 

 



 

 




» 2 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 08:18:37 / sigga

21 árs

Til hamingju með afmælið elskan mín.......

Vinur.

Kæra vinkona
Vertu áfram þú sjálf
Þú ert vinkona mín og sönn vinkona
Vegna þess að þú ert þú sjálf
Vináttan felst í því að vera sönn
Þú ert sönn
Og þess vegna ertu vinkona mín
Ég met það miklis að eiga þig sem vinkonu
Þú ert vinkona mín að eilífu
Ekkert getur breytt því
Því að þú ert þú sjálf
Og munt vera það vinkona mín
Kæra vinkona
Mér þykir vænt um þig
Farðu því vel með þig.

Júl Júl/Sigga

Njóttu dagsins elskan mín, guð blessi þig.....þín bestasta vinkona í öllum heiminum

Sigríður Dhammika Haraldsdóttir

p.s. Sorry Sandra að ég gerði aðra færslu....


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10